
Laugarás Lagoon – baðlón í hjarta Suðurlands
Komdu nær náttúrunni

Árskort til að njóta allt árið
Árskortin eru komin í sölu. Veldu einstaklings- eða fjölskyldukort og njóttu ótakmarkaðra heimsókna í heilt ár, án fyrirframbókunar.

Bragð náttúrunnar
Á veitingastaðnum Ylju skapar Gísli Matthías Auðunsson ásamt sínu teymi matseðil sem byggir á fersku, staðbundnu hráefni frá bændum, gróðurhúsum og framleiðendum á Suðurlandi. Hér mætast íslenskar matarhefðir og nútímalegar matreiðsluaðferðir í eftirminnilegri matarupplifun.
Gestir geta bókað borð á Ylju eða valið upplifunarpakka með aðgangi að Laugarás Lagoon: Ösp með tveggja rétta máltíð af dagseðli eða Björk með fjögurra rétta kvöldverði.

Yljandi jól
Frá 19. nóvember – 3. janúar tekur Ylja á móti jólunum með hátíðlegum seðli að hætti Gísla Matt. Þar mætast íslenskar jólahefðir og hráefni úr nærumhverfinu í matargerð þar sem krydd, ilmur og hlýja jólanna fá að njóta sín.
Komdu saman með fjölskyldu, vinum eða samstarfsfólki og njóttu góðrar stundar við hátíðlegt borð í Laugarási.

Birkitía – Tíu heimsóknir á betri kjörum
Með Birkitíunni færðu 10 nærandi heimsóknir sem færa þig nær jafnvægi, ró og vellíðan, á allt að 40% lægra verði.

Fylgstu með
Skráðu þig á póstlistann okkar. Fylgstu með nýjustu fréttum, viðburðum og sértilboðum frá Laugarás Lagoon.







