Árskort Laugarás Lagoon

Taktu þér tíma fyrir ró og vellíðan, aftur og aftur. Með árskorti geturðu notið ótakmarkaðra heimsókna í Laugarás Lagoon í heilt ár og gert slökun í hlýju lóninu að hluta af þinni rútínu.


Njóttu náttúrunnar og kyrrðarinnar á þínum hraða, hvort sem þú kemur í stutta slökun eða gefur þér lengri stund til að hlaða batteríin.


Veldu einstaklingskort fyrir þig eða fjölskyldukort til að njóta samverunnar. Engin fyrirframbókun er nauðsynleg — við tryggjum árskortshöfum aðgang.


Árskortið gildir í eitt ár frá fyrstu heimsókn og virkja þarf það innan þriggja mánaða frá kaupdegi.

Arskort

Einstaklingskort

Ótakmarkaðar heimsóknir fyrir einn fullorðinn á gildistíma kortsins. Korthafi má taka með sér allt að tvö börn á aldrinum 5–15 ára í hverri heimsókn. Innifalinn er Birki aðgangur að Laugarás Lagoon.


Verð 69.900 kr.

Fjölskyldukort

Ótakmarkaðar heimsóknir fyrir tvo fullorðna á gildistíma kortsins. Korthafar mega taka með sér allt að fjögur börn á aldrinum 5–15 ára í hverri heimsókn. Innifalinn er Birki aðgangur að Laugarás Lagoon.