Árskort í Laugarás Lagoon – vellíðan allt árið
Gerðu slökun og vellíðan að hluta af þinni rútínu. Með árskorti nýtur þú ótakmarkaðra heimsókna í Laugarás Lagoon í heilt ár, á þínum hraða og þegar þér hentar.
Veldu einstaklings- eða fjölskyldukort og njóttu þess að koma aftur og aftur. Engin fyrirframbókun er nauðsynleg og árskortshöfum er tryggður aðgangur.
*Árskortið gildir í eitt ár frá fyrstu heimsókn og skal virkja innan þriggja mánaða frá kaupdegi.

Eintaklingskort
Ótakmarkaðar heimsóknir fyrir einn fullorðinn á gildistíma kortsins. Korthafi má taka með sér allt að tvö börn á aldrinum 5–15 ára í hverri heimsókn. Innifalinn er Birki aðgangur að Laugarás Lagoon.
Verð 69.900 kr.

Fjölskyldukort
Ótakmarkaðar heimsóknir fyrir tvo fullorðna á gildistíma kortsins. Korthafar mega taka með sér allt að fjögur börn á aldrinum 5–15 ára í hverri heimsókn. Innifalinn er Birki aðgangur að Laugarás Lagoon.
Verð 89.900 kr.
