Hefur þú áhuga á að ganga til liðs við teymið okkar?
Hjá Laugarás Lagoon starfar öflugur og metnaðarfullur hópur 80 starfsmanna og við höldum áfram að stækka. Við bjóðum upp á einstakt tækifæri til að taka þátt í að skapa glænýjan vinnustað í stórkostlegu umhverfi á Suðurlandi, þar sem fagmennska, jákvæðni og samvinna eru höfð að leiðarljósi.
Við erum hluti af lifandi og spennandi starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar, þar sem enginn dagur er eins og þar sem tækifærin til vaxtar og þróunar eru fjölbreytt. Markmið okkar er að byggja upp sterka liðsheild sem vinnur saman að því að skapa framúrskarandi upplifun, bæði fyrir gesti og starfsfólk.
Störf í boði
Almenn umsókn
Gott starfsfólk er hjartað í Laugarás Lagoon og við erum alltaf áhugasöm um að kynnast fólki sem vill vaxa og þróast með okkur. Við leitum að einstaklingum sem mæta til leiks með jákvætt hugarfar, metnað og vilja til að skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti og samstarfsfólk.
