Bókunarskilmálar og afbókunarstefna – Laugarás Lagoon

Við hlökkum til að taka á móti þér í Laugarás Lagoon. Með því að bóka hjá okkur, hvort sem það er aðgangur að lóninu, veitingaþjónustu eða hópþjónustu, samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

1. Almennir bókunarskilmálar 

  • Hægt er að bóka í gegnum heimasíðu okkar, hjá söluaðilum þriðja aðila eða með beinu sambandi við okkur. 
  • Allar bókanir fara eftir framboði og eru staðfestar við greiðslu eða samkvæmt samningsbundnum reikningsskilmálum þegar um samstarfsaðila eða B2B viðskiptavini er að ræða. 
  • Þú berð ábyrgð á að gefa upp réttar samskiptaupplýsingar til að fá staðfestingu og tilkynningar um breytingar. 
  • Gestir sem eru með sérþarfir (t.d. vegna aðgengis eða mataræði) eru hvattir til að láta vita fyrirfram svo við getum komið til móts við þær eftir bestu getu.

2. Breytingar á bókun 

Þú getur óskað eftir að breyta dagsetningu, tíma eða fjölda gesta í bókun þinni. 

  • Beiðnir um breytingar fyrir einstaklinga og smærri hópa (1–14 manns) skulu sendar skriflega á booking@laugaraslagoon.is 
  • Beiðnir um breytingar fyrir hópa (15 manns eða fleiri) skulu sendar skriflega á sales@laugaraslagoon.is og fara eftir framboði.

 

Breytingarbeiðnir sem berast innan afbókunarfrests geta talist sem afbókun ef við getum ekki orðið við breytingunum.

3. Afbókunarstefna

Afbókunarskilmálar fara eftir stærð hópsins: 

Einstaklingar og smáhópar (1–14 gestir) 

  • Afbókanir sem berast meira en 24 klst. fyrir bókaðan tíma fá fulla endurgreiðslu eða verða ekki rukkaðar. 
  • Afbókanir sem berast innan við 24 klst. fyrir bókaðan tíma eru rukkaðar að fullu.

Hópar (15 gestir eða fleiri) 

  • 15–30 gestir: Afbóka þarf að lágmarki 5 dögum fyrir – full endurgreiðsla eða engin rukkun. 
  • 31–50 gestir: Afbóka þarf að lágmarki 7 dögum fyrir – full endurgreiðsla eða engin rukkun. 
  • 51+ gestir: Afbóka þarf að lágmarki 14 dögum fyrir – full endurgreiðsla eða engin rukkun.

Afbókanir sem berast eftir tilskilinn frest verða rukkaðar að fullu.  Þeir sem ekki mæta teljast sem seinar afbókanir og fá ekki endurgreitt. 

Forföll án tilkynningar telst vera þegar gestur mætir ekki á bókuðum tíma án þess að hafa gefið skriflega tilkynningu innan afbókunarfrests.

4. Hvernig á að afbóka

  • Allar afbókanir skulu berast skriflega á booking@laugaraslagoon.is eða sales@laugaraslagoon.is 
  • Afbókanir sem berast í gegnum síma, samfélagsmiðla eða aðra miðla eru ekki teknar gildar. 
  • Tímasetning tölvupóstsins gildir sem vísir um hvort afbókun hafi borist innan frests eða ekki.

5. Óviðráðanleg atvik 

Laugarás Lagoon áskilur sér rétt til að fella niður eða færa bókanir ef ófyrirséð atvik verða sem eru utan okkar stjórnunar (t.d. óveður, náttúruhamfarir eða takmarkanir af hálfu yfirvalda). Í slíkum tilfellum verður gestum boðið að færa bókun eða fá fulla endurgreiðslu.