Einkarými

Einkarýmið okkar á veitingastaðnum Ylju hentar vel fyrir einkasamkomur og önnur tilefni.

Innan um kyrrláta stemningu á veitingastaðnum Ylja, bjóðum við upp á hlýlegt og fallega hannað rými fyrir ýmis tilefni.  Hvort sem um er að ræða matarupplifun fyrir hópa, fundi eða móttöku, þá er rýmið sveigjanlegt og hægt að aðlaga því að tilefninu. 

Það rúmar allt að 35 gesti í kvöldverð, 40 í standandi móttöku og 25 í fundaruppsetningu.  Rýmið er 47 fermetrar að stærð og hluti þess opnast út að náttúrunni, þar sem notalegheitin innandyra mætast við fegurðina úti. Þráðlaust net og skjávarpi er í rýminu.

Gestir njóta matargerðarlistar kokka Ylju sem yfirkokkur okkar, Gísli Matt leiðir, umluktir andrúmslofti sem mótað er af listaverki eftir íslenska listamanninn Sigmund Freysteinsson og náttúrunnar í kring.