Vellíðunarpassi
Lónið
Ylja veitingastaður
Svæðið
Gjafakort
Bóka borð
Vertu velkomin(n) í Laugarás Lagoon! Til að tryggja öryggi og vellíðan allra gesta, biðjum við þig um að virða eftirfarandi reglur.
Öryggis- og umgengisreglur
Starfsfólk: Gestir þurfa ávallt að fylgja fyrirmælum starfsfólks. Starfsfólk er til staðar til að tryggja öryggi og vellíðan allra. Ef ekki er farið eftir fyrirmælum þeirra getur það leitt til brottvísunar af svæðinu.
Eftirlit með börnum
Starfsfólk Laugarás Lagoon getur beðið um gilt skilríki eða vegabréf til að staðfesta aldur barns og áskilur sér rétt til að neita aðgangi ef ekki er hægt að framvísa gildum skjölum. Foreldrar og forráðamenn bera ábyrgð á börnum sínum á öllu svæðinu.
Sundföt: Sundföt skulu ávallt notuð á öllum útisvæðum. Sundföt skulu vera úr efni sem er sérstaklega hannað til notkunar í vatni.
Dýfingar: Allar dýfingar og hopp ofan í lónið eru bönnuð. Brot á því geta valdið brottrekstri.
Notkun vímuefni: Reykingar, notkun tóbaks, veip, nikótínpúðar eða önnur notkun nikótíns er stranglega bönnuð innan rekstrarsvæðis Laugarás Lagoon.
Matur og drykkur: Ekki er leyfilegt að koma með eigin mat eða drykk í Laugarás Lagoon. Allir drykkir sem keyptir eru á lónssvæði eru bornir fram í plastglösum. Hámarkið er þrír áfengir
drykkir á hvern gest.
Leikföng: Engin sundleikföng eru leyfð. Uppblásin leikföng, boltar eða köfunarbúnaður er ekki leyfilegur.
Þvottur án sundfata: Allir gestir verða að þvo sér vandlega með sápu, án sundfata, áður en farið er ofan í lón. Hár skal skola eða þvo.
Gæði vatnsins: Heita vatnið í lóninu kemur frá hverasvæðinu í Laugarási í gegnum
Bláskógabyggð. Það er kælt niður með jökulvatni úr Hvíta, sem fer í gegnum síu og er hreinsað áður en það rennur í lónið. Að auki er lónið tæmt reglulega og hreinsað vel áður en það er fyllt aftur og dagleg sýnataka framkvæmd. Lónið er nátturulegt og án klórs. Saman tryggjum við hreint vatn. Það er skylda að sturta sig áður en farið er í lónið.
Hált gólf: Vinsamlegast athugið að gólf og gönguleiðir geta orðið hálar þegar þær eru blautar. Farið varlega á blautum svæðum og í tröppum. Gestir nýta aðstöðuna á eigin ábyrgð.
Tillitssemi: Laugarás Lagoon áskilur sér rétt til að meina gestum aðgang eða vísa þeim úr böðunum ef:
• Einstaklingur sýnir ógnandi hegðun gagnvart starfsfólki eða öðrum gestum.
• Einstaklingur beitir ógnandi eða móðgandi orðalagi eða hegðar sér þannig að upplifun annarra truflast.
• Einstaklingur virðist vera undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna.
Starfsfólk Laugarás Lagoon áskilur sér rétt til að mæla áfengismagn í útöndun með áfengismæli ef grunur vaknar um vímuefnaneyslu. Sé niðurstaðan yfir 0,08% fær viðkomandi ekki aðgang að böðunum. Sama á við um afgreiðslu á barnum. Neiti gestur að blása í áfengismæli telst miðinn ógildur. Ef gestur er þegar kominn ofan í böðin og hafnar blæstri, verður honum vísað úr.Í þessum tilvikum er engin endurgreiðsla í boði fyrir viðskiptavini.
Myndatökur: Notkun myndavéla og síma til myndatöku er stranglega bönnuð í búningsklefum og sturtum. Vinsamlegast sýnið aðgát og virðingu gagnvart öðrum gestum. Gestir skulu forðast að taka myndir eða hljóðupptökur af öðrum án þeirra samþykkis. Myndir og myndbönd sem teknar eru í Laugarás Lagoon eiga eingöngu að vera til einkanota og ekki notaðar í auglýsingaskyni.
Verðmæti: Gestir eru beðnir um að nota læsta skápa fyrir eigur sínar. Gestir ættu að forðast að koma með verðmæti eða viðkvæma hluti inn á lónssvæði, þar sem vatn, raki og hiti geta valdið skemmdum. Laugarás Lagoon ber ekki ábyrgð á týndum, stolnum eða skemmdum persónulegum munum.
Umhirða: Vinsamlegast gangið vel um svæðið og skilið búningsklefa og skápum hreinum og snyrtilegum eftir notkun.