Persónuverndarstefna

Laugarás Lagoon („við“ eða „okkur“) leggur áherslu á persónuvernd þína og er persónuverndarstefnu þessari ætlað að útskýra hvaða upplýsingum við söfnum um þig, hvernig þær eru notaðar, hvernig öryggi þeirra er tryggt og hver réttur þinn er. Stefna þessi nær til vinnslu persónuupplýsinga núverandi, fyrrverandi og verðandi viðskiptavina, þá sem heimsækja heimasíðu okkar og aðra sem eiga í samskiptum við okkur í gegnum heimasíðu okkar, síma, tölvupóst eða í gegnum þriðja aðila („þú“, „þér“ eða „þig“). Laugarás Lagoon er ábyrgðaraðili við þessa vinnslu persónuupplýsinga. 

Við hvetjum þig til að kynna þér efni persónuverndarstefnunnar til að þú gerir þér grein fyrir vinnslu persónuupplýsinga þinna og hvernig sú vinnsla fer fram.

Hver erum við?

Laugarás Lagoon ehf. Kt. 532022-0760 rekur baðlón og veitingastað sem staðsett eru í Laugarás á Íslandi.

Skilgreiningar

Persónuverndarlög: Um vinnslu persónuupplýsinga gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerðar (ESB)2016/679 (GDPR). 

 

Samþykki: óþvinguð, sértæk, upplýst og ótvíræð viðjayfirlýsing hins skráða um að hann samþykki, með yfirlýsingu eða ótvíræðri staðfestingu, vinnslu persónuupplýsinga um sig. 

 

Ábyrgðaraðili: sá aðili sem ákveður tilgang vinnslu persónuupplýsinga, þann búnað sem notaður er, aðferð við vinnsluna og aðra ráðstöfun upplýsinganna. 

 

Persónuupplýsingar: sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar um hinn skráða. 

 

Vinnsla: sérhver aðgerð eða röð aðgerða þar sem unnið er með persónuupplýsingar, hvort heldur sem vinnslan er handvirk eða rafræn.

Hvaða persónuupplýsingum söfnum við um þig****

Við söfnum og vinnum með persónuupplýsingar til þess að geta veitt þér þjónustuna sem við bjóðum, í þeim tilgangi kunnum við að m.a. að safna eftirfarandi persónuupplýsingum: 

Grunn- og samskiptaupplýsingar: s.s. nafn, kennitala, símanúmer, netfang, ríkisfang, kyn, aldur. 

Upplýsingar sem tengjast bókun: s.s. dagsetning og tímasetning, fjöldi gesta, sérstakar óskir. Í einstaka tilfellum, þegar þú hefur veitt okkur slíkar upplýsingar af fúsum og frjálsum vilja, kunnum við að vinna með heilsufarsupplýsingar um þig. 

Greiðsluupplýsingar: s.s. kortanúmer, gildistími og cvc númer. 

Samskipti okkar við þig: s.s. netfang, skilaboð, fyrirspurnir, ábendingar og kvartanir viðskiptavina. 

Rafræn vöktun: Myndefni sem verður til við rafræna vöktun.

Hvaðan fáum við persónuupplýsingar?

Þær upplýsingar sem við vinnum með berast yfirleitt beint frá þér. Svo sem þegar þú bókar þjónustu, sendir okkur fyrirspurn, ábendingu, beiðni eða kvörtun t.d. í gegnum heimasíðu okkar, með tölvupósti, í síma eða í gegnum þriðja aðila. Þegar þú átt í samskiptum við okkur í gegnum samfélagsmiðla eða gerist áskrifandi að fréttabréfi okkar.

Hvernig eru persónuupplýsingarnar notaðar?

Við vinnum með persónuupplýsingar þínar til þess að geta veitt þér þjónustu okkar,geta gengið frá eða sent þér upplýsingar varðandi bókun þína og til að annast bókhald og reikningagerð. Við kunnum einnig að vinna með persónuupplýsingar til að bæta þjónustu okkar og stunda markaðs- og kynningarstarf.

Heimildir til vinnslu persónuupplýsinga

Við styðjumst við mismunandi heimildir við vinnslu persónuupplýsinga en að mestu leyti grundvallast söfnun og önnur vinnsla persónuupplýsinga á samningi milli okkar og þín svo hægt sé að veita þér þá þjónustu sem þú óskar eftir. Í ákveðnum tilvikum grundvallast vinnsla persónuupplýsinga á lagaskyldu sem hvílir á okkur, s.s. laga um bókhald. Þá kunnum við að óska eftir samþykki þínu fyrir vinnslu persónuupplýsinga eða vinna með persónuupplýsinga vegna þess að við, þú eða þriðji aðili hefur lögmæta hagsmuni af því að vinnslan fari fram. Í einstaka tilvikum getur komið upp sú staða að við vinnum með persónuupplýsingar þínar á grundvelli nauðsynlegra hagsmuni þinna, s.s. ef neyðartilvik kemur upp. 

Á grundvelli lögmætra hagsmuna okkar er viðhöfð rafræn vöktun með eftirlitsmyndavélum á starfstöðvum okkar og fer slík vöktun fram í öryggis- og eignavörsluskyni. Myndefni sem verður til við rafræna vöktun er ekki geymt lengur en í 30 daga, nema lög heimili annað eða á grundvelli þeirra sjónarmiða sem fram koma í 11. gr. reglna Persónuverndar nr. 50/2023 um rafræna vöktun.

Hverjum afhendum við persónuupplýsingar?

Við seljum ekki persónuupplýsingar þínar en kunnum að miðla þeim þegar um er að ræða: 

Þjónustuaðila: Við kunnum að miðla upplýsingum þínum til aðila sem veita okkur tiltekna þjónustu, s.s. greiðsluþjónustu og gæða- og markaðsstarf. Við munum aðeins miðla til þessara þjónustuaðila þeim upplýsingum sem þeir þurfa til að geta veitt okkur slíka þjónustu og þeim er ekki heimilt að vinna með upplýsingarnar í öðrum tilgangi. 

Lögbundna skyldu og lögvarða hagsmuni: Við kunnum að miðla þínum upplýsingum til þriðja aðila til að uppfylla lagaskyldu sem á okkur hvílir, til að verða við beiðnum frá opinberum aðilum, til að geta staðið vörð um lagaleg réttindi okkar, til að stofna, hafa upp og verjast réttar kröfu og til að grípa til aðgerða til að vernda eignir okkar.  

Miðlun utan Evrópska efnahagssvæðisins: Við miðlum almennt ekki persónuupplýsingum utan Evrópska efnahagssvæðið. Í undantekningatilvikum gætum við þurft að flytja persónuupplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins ef það er nauðsynlegt á grundvelli sérstakra aðstæðna skv. 49. gr. GDPR.

Öryggi persónuupplýsinga

Við leggjum áherslu á öryggi við vinnslu persónuupplýsinga og tryggjum að gerðar séu viðeigandi skipulagslegar og tæknilegar öryggisráðstafanir til að vernda þínar persónuupplýsingar. Undir þær ráðstafanir falla m.a. notkun öruggra vefþjóna, dulkóðuð greiðslukerfi og aðgangsstýringar í kerfum okkar.

Varðveislutími persónuupplýsinga

Persónuupplýsingar eru varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang hverrar vinnslu eða eins lengi og lög krefjast.

Þín réttindi****

Í ákveðnum tilvikum átt þú tiltekin réttindi á grundvelli persónuverndarlaga. Þú getur átt rétt á því að fá staðfest hvort að við vinnum með persónuupplýsingar um þig og óskað eftir aðgangi að þeim. Þú átt rétt á því að óska eftir leiðréttingu á þeim persónuupplýsingum sem unnið er með um þig og í ákveðnum tilvikum óskað eftir því að við eyðum þínum persónuupplýsingum eða að vinnslu þeirra verði takmörkuð. Ef persónuupplýsingar eru unnar á grundvelli lögvarða hagsmuna okkar getur þú mótmælt vinnslunni.  

Þetta eru ekki fortakslaus réttindi og því kann beiðni þinni að vera hafnað. Ef þú vilt nýta þér rétt þinn er þér velkomið að senda skriflega beiðni á info@laugaraslagoon.is

Komi upp ágreiningur við vinnslu persónuupplýsinga getur þú sent kvörtun til Persónuverndar.

Afturköllun samþykkis****

Ef vinnsla persónuupplýsinga þinna byggir á samþykki þínu er þér heimilt, á hvaða tímapunkti sem er, að afturkalla samþykki þitt með því að senda okkur skriflega beiðni á  info@laugaraslagoon.is. Afturköllun á samþykki hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslunnar fram að afturköllun.

Bókanir í gegnum þriðja aðila 

Vefsíða okkar eða bókunarkerfi kann að vera tengt vefsíðum þriðja aðila sem við eigum ekki eða rekum. Þessi persónuverndarstefna gildir ekki um slíka aðila.

Vefsíðan okkar 

Við vinnum með persónuupplýsingar varðandi notkun þína á vefsíðu okkar, s.s. staðsetningargögn, upplýsingar um búnað og tæki sem þú notar til að tengjast vefsíðunni og tegund vafra. Við vinnum með persónuupplýsingarnar m.a. til að útbúa tölfræði upplýsingar, bæta notendaupplifun og sérsníða efni til að mæta þörfum þínum.  

Við vinnum með nokkrar tegundir af vefkökum, svo sem: 

Nauðsynlegar vefkökur, til að tryggja grunnvirkni vefsíðu okkar. 

Tölfræðilegar vefkökur, til gera okkur kleift að greina notkun á vefsíðu okkar og að bæta notendaupplifun. 

Markaðslegar vefkökur, til að greina hegðun notenda og gerir okkur kleift að birta auglýsingar út frá þeim upplýsingum.

Börn 

Persónuupplýsingum barna undir 13 ára er ekki safnað nema með samþykki foreldris eða forráðamanns. Hafi barn undir 13 ára afhent okkur persónuupplýsingar hvetjum við foreldri eða forráðamann að hafa samband við okkur og við munum fjarlægja persónuupplýsingarnar úr okkar gagnagrunni.

Breytingar á persónuverndarstefnu 

Persónuverndarstefnan er endurskoðuð reglulega og kann því að taka breytingum. Uppfærð útgáfa er ávallt aðgengileg á heimasíðu okkar.